Mato
ShowsHow it worksAI talentsFree toolsPricing
Book a demo
ShowsHow it worksAI talentsFree toolsPricingSign in
Mato
Mato

The first generation of AI talents. Live AI media for brands, networks and creators.

ElevenLabs GrantsAWS ActivateGoogle for StartupsNVIDIA Inception Program

Product

  • How it works
  • AI talents
  • Documentation
  • The studio
  • Pricing
  • Embed player
  • Mato MCP
  • Mato Voice
  • Voice Studio
  • Changelog

Company

  • About
  • Vision
  • Partners
  • Affiliates
  • Blog
  • CustomersComing soon
  • CareersComing soon
  • Press kit
  • Contact

Resources

  • Investor overview
  • Free podcast tools
  • Free podcast transcription
  • Podcast ROI calculator
  • API docsComing soon
  • SecurityComing soon
  • StatusComing soon

© 2026 Mato. All rights reserved.

English · Multiple languages available

PrivacyTerms

Live Interview

And why does that matter?

This is how a Mato agent talks. Take the other seat: answer a few and feel it follow the thread.

Try it yourself

Podcast charts

hún hlaðvarp

Published by Erna Hrund Hermannsdóttir

  • Business
  • Careers

Hún er hlaðvarpssería um konur sem hafa farið sínar eigin leiðir í íslensku atvinnulífi. Þær koma úr ólíkum áttum en eiga það sameiginlegt að hafa byggt upp sterkan feril og tekist á við krefjandi ákvarðanir á leiðinni. Í þáttunum segja þær frá ferðalaginu, áskorunum og ákvörðunum sem hafa mótað þær. Markmiðið er að veita innsýn og innblástur og skapa rými fyrir umræðu um konur sem vilja ná langt, taka pláss og skapa sér sterkan sess í atvinnulífinu, læra hver af annarri og miðla reynslu og þekkingu.

Listen on Apple Podcasts, opens in a new tabMake something like it

On the charts

1 chart placement

Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.

  1. Number 110CareersNorway

From the feed

Recent episodes

The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.

  1. hún hlaðvarp #15 Snædís Ögn Flosadóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Sep 15, 20262 hr 3 min

    Gestur þáttarins er Snædís Ögn Flosadóttir. Peningum fylgja völd og konur fá ekki raunveruleg völd fyrr en þær fara fyrir fjármagni í meira mæli, en gestur þáttarins er ein af mjög fáum íslenskum konum sem gert einmitt það. Hún er forstöðumaður markaða hjá Arion banka og var áður framkvæmdastjóri þriggja lífeyrissjóða í einu og þá önnur af aðeins tveimur konum á landinu sem stýrðu lífeyrissjóði. Hún er iðnaðarverkfræðingur og ætlaði sér alls ekki að vinna í banka. Það sem mér finnst áhugaverðast við hana er ekki hverju hún stýrir, heldur hvernig. Hún segist hafa óskaplega gaman af því að tala, en að mikilvægasta venjan hennar sem stjórnandi sé að hlusta. Í dag tölum við um leiðina hennar, sem var hvorki bein né í réttri röð, um peninga og hvernig maður byggir upp heilbrigt samband við þá, og um hvernig kona leiðir með því að hlusta frekar en að taka mest pláss. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  2. hún hlaðvarp #14 Lóa Dagjört Kristjánsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Sep 9, 20261 hr 44 min

    Gestur þáttarins í dag er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir. Konu sem hefur fært okkur margar af þekktustu fataverslunum Norðurlandanna. Í lítilli íbúð í Halmstad í Svíþjóð, einhvern tímanní kringum 2010, sat kona við eldhúsborð. Borðið var þakið innkaupapokum og pökkum. Hún var með fartölvu í kjöltunni og barn á brjósti og var að slá inn pantanir. Þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni ýtti hún tölvunni frá sér og sagði: „Nei. Nú vil ég ekki taka við fleiri pöntunum. Þetta er of mikið." Hún var í fæðingarorlofi. Hún hafði flutt út til að hægja á sér, baka pönnukökur og njóta þess að vera með strákunum sínum. Í staðinn stofnaði hún fyrirtæki. Í dag eru verslanirnar á þriðja tuginn og starfsfólkið hátt í tvö hundruð. Hún hefur tekið hvert vörumerkið á fætur öðru,merki sem fæstir hér þekktu og gert þau að einhverju sem heil þjóð kann skil á. Hún er með ekkert skipurit, því fólkið hennar hefur ábyrgðarhlutverk frekar en stað í skipuriti. Krakkarnir hennar eru með í rekstrinum og mamma hennar líka. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  3. hún hlaðvarp #13 Eva Ruza Miljevic from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Sep 1, 20261 hr 51 min

    Gestur þáttarins í dag er Eva Ruza Miljević. Þið þekkið hanaaf sviði, úr útvarpi, af skjánum, konuna sem er alltaf með míkrófóninn, alltaf með húmorinn, alltaf með orkuna sem fyllir salinn og oftar en ekki öskursyngjandi. En það sem mig langar að tala um í dag er ekki bara sviðið heldur líka árin á undan. Trúin sem hún hafði á sjálfri sér áður en nokkur vissi hver hún var og hvað það kostaði hana að stökkva. Það er til gamalt myndband, tekið heima í stofu í Kópavogi,þar sem lítil stelpa er spurð hvað hún ætli að verða þegar hún verði stór. Hún svarar án þess að hika: „Ég ætla að verða fræg." Um fjörutíu árum síðar má svo sannarlega segja að henni hafi tekist það. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  4. hún hlaðvarp #12 Dr. Þóranna Jónsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Jun 16, 20261 hr 50 min

    Gestur þáttarins er Dr. Þóranna Jónsdóttir við tölum um konur í forystu, erfiðar ákvarðanir, áhrifin sem sjást ekki alltaf utan frá og hvað það þýðir að byggja sér leið, ekki með því að bíða eftir leyfi heldur með því að stíga inn. Sumar konur ganga ekki bara inn um dyrnar sem þeim er boðið inn um. Þær læra að opna nýjar dyr. Þær læra að sitja við borðin þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Og stundum þegar þær eru komnar þangað breyta þær reglunum svo fleiri komist inn á eftir þeim. En hvernig verður maður sú manneskja sem er hringt í þegar mikið liggur við? Þegar fyrirtæki þarf nýja stefnu. Þegar stjórn þarf skýrari sýn. Þegar eitthvað er í vanda og einhver þarf að ganga inn í flækjuna, sjá kjarnann og segja: byrjum hér. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  5. hún hlaðvarp #11 Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Jun 9, 20261 hr 36 min

    Gestur þáttarins er Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, kona sem eflaust þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda ein þekktasta sjónvarsp- og fjölmiðla kona landsins. Í dag situr hún í framkvæmdastjórn &starfar sem markaðs- & upplifunarstjóri Hagkaupa en þar hefur hún skapað sér nýtt hlutverk, ekki með því að loka á það sem hún var, heldur með því að byggja ofan á það. Í þættinum tölum við um hugrekki, sjálfsmynd, breytingar, metnað, móðurhlutverkið, pressuna sem fylgir því að vera kona í sviðsljósinu og hvað það þýðir að leyfa sér að byrja aftur og breyta til. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Armani snyrtivörur ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  6. hún hlaðvarp #10 Bókaklúbbur og trúnó from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    May 28, 20261 hr 9 min

    Í þessum þætti förum við aðeins yfir hvað mér fannst standa uppúr í síðustu viðtölum. Ég kynni til leiks bækurnar fyrir nýja bóka klúbbinn okkar, Aspire, Lean in og Leiðin heim, en hugmyndin er að taka svo fyrir hverja bók fyrir sig og ræða hana og áhrifin sem hún hefur. Ég hvet ykkur til að lesa þær í sumar, ég er búin með bókina Leiðin Heim og fékk höfundinn hana Karitas Sigurðardóttur til mín í smá spjall. Loks svara ég svo alls konar spurningum frá ykkur og frá mér sjálfri í takt við þær sem viðmælendurnir hafa svarað, kominn tími til að gefa ykkur ennþá meiri innsýn inn í minn hugarheim. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, ILVA , Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  7. hún hlaðvarp #9 Sesselía Birgisdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    May 19, 20261 hr 42 min

    Sesselía Birgisdóttir, forstöðumaður viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar hjá Högum, hefur byggt feril sinn á breytingum, uppbyggingu og umbreytingu. Hún hefur farið inn í ólíkar atvinnugreinar, tekið að sér hlutverk sem voru oft ný eða í mótun, og aftur og aftur unnið með það sem er annaðhvort að verða til, eða þarf að breytast. Í þættinum fáum við að kynnast konunni á bak við verkefnin. Heyrum hvernig maður fer inn í nýja heima, byggir frá grunni, leiðir fólk í gegnum breytingar, og lærir að treysta því og hlusta þegar næsti kafli kallar. hún hlaðvarp er í boði: Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  8. hún hlaðvarp #8 Arna Harðardóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    May 5, 20261 hr 34 min

    Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix Health, fyrirtækis sem vinnur að því að tengja saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta þjónustu fyrir bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk. Arna hefur þurft að taka stórar ákvarðanir á stuttum tíma, byggja upp traust hratt og leiða fólk í gegnum breytingar. Hún gerir það á sinn hátt, af yfirvegun, sannfæringu og með skýra sýn á það að sjúklingurinn sjálfur sé ein mikilvægasta, en jafnframt vannýttasta, auðlind heilbrigðiskerfisins. Í þessu samtali förum við yfir leiðtogahlutverkið, ábyrgðina, gildin og lærdóminn sem fylgir því að stíga inn í stór verkefni án þess að missa tengingu við sjálfa sig. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir Planman Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  9. hún hlaðvarp #7 Edda Konráðsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Apr 28, 20261 hr 26 min

    Edda Konráðsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Edda hefur helgað ferilinn sinn nýsköpun og sprotum, hún er annar stofnenda Iceland Innovation Week og rekur viðburða og hugmyndastúdíóið Milk & Kleina. Mér fannst tilvalið að fá hana Eddu til mín í spjall nú þegar IIW er einmitt að hefjast. Edda stýrði Gullegginu sem er elsta frumkvöðlakeppni Íslands þar sem mörg fyrirtæki hafa tekið sín fyrstu skref. Það var virkilega áhugavert að heyra hennar sýn á hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að fyrstu skrefum í heimi nýsköpunar, hvernig hún nálgast erfiðar aðstæður og það stendur uppúr að heyra hvernig hún talar um aðra og mikilvægi fyrirmynda bæði fyrir sig og aðra. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Ylva Þórsdóttir Planman Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  10. hún hlaðvarp #6 Salóme Guðmundsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Apr 21, 20261 hr 23 min

    Salóme Guðmundsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Ísorku, situr í þónokkrum stjórnum og er stofnandi og formaður konur í stjórnum. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  11. hún hlaðvarp #5 Guðrún Aðalsteinsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Apr 14, 20261 hr 23 min

    Guðrún Aðalsteinsdóttir er gestur hún hlaðvarp þessa vikuna. Í dag starfar hún sem framkvæmdastjóri Krónunnar með eftirtektarverðum hætti. Guðrún er svo sannarlega leiðtogi með skýra sýn og fyrir mér hefur alltaf verið greinilegt að hún hefur sterka sannfæringu og trú á að það sem hún er að gera skiptir máli - sem er svo sannarlega rétt. Guðrún er sýnilegur leiðtogi bæði fyrir starfsfólkið sitt en einnig fyrir fólkið í landinu. Hún hefur haldið gildum sínum á lofti í gegnum sín störf þar sem allir eiga að upplifa að þeir og þeirra störf skipti máli, það eigi að koma eins fram við alla og allir ættu að hafa val og aðgengi að vörum sem stuðla að heilsusamlegri lífstíl. Mikið var gaman að heyra alla söguna og skilja enn betur hvað það var sem mótaði hana að þeirri konu og leiðtoga sem hún er í dag. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Vichy og Mango. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  12. hún hlaðvarp #4 upprifjun & spurningar frá ykkur from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Apr 7, 202657 min

    Í þessum þætti langaði mig að segja ykkur hvað stóð uppúr hjá mér úr fyrstu þremur viðtölunum. Einnig er ég meira á persónulegu nótunum og svara spurningum hlustenda eins og hvernig leið mér þegar ég sagði upp? hvað getum við gert til að lyfta upp konum? afhverju forðast konur við að breyta? Svo að lokum deili ég 5 bestu ráðunum sem ég hef fengið á ferlinum mínum. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  13. hún hlaðvarp #3 Dr. Ásta Dís Óladóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Apr 1, 20261 hr 12 min

    Leiðtogi sem vill breyta hlutunum og vinnur hörðum höndum að því að efla tengsl milli háskóla og atvinnulífs. Dr. Ásta Dís Óladóttir, nýkjörin forseti Viðskiptafræði Háskóla Íslands, háskólakona ársins 2025 og stofnandi rannsóknarseturs um jafnrétti í efnahags- & atvinnulífi. Ásta Dís er leiðtogi sem hefur haft mikil áhrif á umræðuna um stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi og hefur helgað ferlinum sínum rannsóknum á þessu máli. Við ræddum um ferilinn hennar, fórum yfir nýjust rannsóknir og hvernig við þurfum að beita okkur fyrir áhrifum í umræðunni. Samkvæmt nýjustu tölum munum við ekki ná 40% markmiðinu okkar um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með 50 eða fleiri starfsmenn fyrr en árið 2070. Tölurnar og samtalið okkar sýnir hve mikilvægt það er að við stöndum saman og höldum þessari umræðu á lofti. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko, Mango og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  14. hún hlaðvarp #2 Edda Hermannsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Mar 24, 20261 hr 9 min

    Hvernig verður maður leiðtogi sem nær að halda ró í sviðsljósinu og lyfta öðrum með sér. Edda Hermannsdóttir, forstjóri Lyf og Heilsu, er gestur þáttarins. Hún hefur sýnt að það að sameina skýra stefnu og annlega forystu skilar árangri. Við Edda ræddum nýja stefnu Apótekarans og áherslur sem hún setti sér strax á fyrsta degi í nýju starfi. Edda hefur átt áhugaverðan feril sem gæti virkað fyrir mörgum óvenjulegur en þarna er alltaf einhver dýpri hugsun á bakvið. Auk þess má nefna að samtöl okkar Eddu eru ein af ástæðunum fyrir þessu hlaðvarpi og ég er viss um að hún muni veita fleirum en bara mér innblástur. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  15. hún hlaðvarp #1 Rakel Guðmundsdóttir from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Mar 17, 20261 hr 19 min

    Kraftmikill frumkvöðull sem er ekki hrædd við að taka stökkið þegar hún sér tækifæri. Rakel Guðmundsdóttir , eignarhaldsstjóri hjá Alfa Framtak og annar stofnenda Venja, er gestur þáttarins. Við Rakel fórum yfir víðan völl í samtalinu okkar. Við ræddum um hvernig hlutverk stjórnar styður við bakið á stjórnendum fyrirtækja, frumkvöðlalífið og hvernig góð yfirsýn fjármagns skiptir öllu, stefnumótun og 100 daga áætlun. Að sjálfsögðu ræddum við líka móðurhlutverkið og hvernig forgangsröðun skiptir lykilmáli þegar kemur að því að halda jafnvægi. Í lokin ræddum við svo hvernig fyrirtæki og stjórnendur geta stutt við foreldra í fæðingarorlofi og sérstaklega eftir það, málefni sem stendur okkur báðum nær. hún hlaðvarp er í boði: Arna mjólkurvörur, Bloom, Elko og Vichy. Upptaka, klipping og eftirvinnsla: Bryndís Sigurðardóttir Upphafsstef: Kolbrún Óskarsdóttir Sérlegur ráðgjafi: Þórhallur Gunnarsson hún hlaðvarp er tekið upp í Klakinn Stúdíó

  16. hún hlaðvarp með Ernu Hrund - KYNNING from hún hlaðvarp, opens in a new tab

    Mar 10, 20268 min

    Hvað er svo næst? spurning sem ég hef fengið ótrúlega oft undanfarnar vikur. Eftir að hafa hrisst all verulega upp í lífinu í leit að þroska og nýrri þekkingu með það í huga að langa að gera heiminn að betri stað varð til hún hlaðvarp. Í þessum kynningarþætti langar mig að gefa ykkur innsýn í það hvert ég ætla með þetta ferðalag og afhverju, ég reyni að gera þetta fyrst og fremst af einlægni og hreinskilni og með það í huga að við séum alltaf sterkari saman og sérstaklega þegar við leitum ráða hver hjá annarri. Í hverjum þætti fær ein kona sviðsljósið, við heyrum um þeirra ferðalag og lærdóm og verðum vonandi fróðari eftir hlustun. Inn á milli koma svo styttri þættir þar sem ég ætla að deila með ykkur mínum lærdómi. Markmiðið er að gefa konum innblástur og innsýn í ferðalag annarra kvenna, fá tækifæri til að spegla sig og þannig fá aukið sjálfstraust í að sækjast eftir tækifærum. Fá að heyra sögur af erfiðum ákvörðunum eða áskorunum sem þær hafa mætt og þroskað þær á sínu ferðalagi. Mig langar að opna umræðu um konuna sem vill ná langt, sem vill skapa sér sterkan stað í íslensku atvinnulífi og hafa áhrif. Eflaust hafa margar konur upplifað að þær þurfi að velja á milli fjölskyldu og starfsferilsins en er hægt að gera bæði eða má gera bæði? Í þáttunum kynnumst við ólíkum stjórnendastílum, hugsungargangi og hvernig viðmælendur hafa þróað sinn stíl yfir ferilinn.

Ranking source

Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.

Observed September 20, 2026.

Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.

Pairs with

What to do with a chart

01ShowsThe shows Mato publishesEvery public Mato show, its episodes, and the Apple placements it holds.02AI talentPick the voice before the formatThe live roster of hosts, each with samples you can listen to before you commit.03How it worksFrom an idea to a published episodeWhat Mato does between the brief and the feed, step by step.

Steal the structure, not the show

Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.

Hear a Mato showCreate a show inspired by this