Podcast charts
Published by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika. Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson
On the charts
Every published chart this podcast appears in, in the snapshot behind this page. Each one links to the chart it came off.
From the feed
The latest episodes published to this podcast’s own RSS feed. Titles and descriptions are the publisher’s.
Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn. Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á meðal þennan erfiða sjúkdóm sem hann greindist með árið 2003. Haukur lætur MS-sjúkdóminn ekki stoppa sig og er með um 11 í forgjöf og leikur mikið golf á Dalvík þar sem hann er búsettur. Við förum aðeins yfir golfið hjá Hauki og ræðum einnig forláta golfbílinn sem hann ekur um á - Yamaha Sun Classic sem lítur út eins og golfbíll úr framtíðinni en er yfir 30 ára gamall. Mjög áhugaverður og fróðlegur þáttur. Draumahollið og óvenjuleg kraftröðun á sínum stað!
Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska. Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila. Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í kálfa kylfings sem var í ráshópnum fyrir framan hann. Það getur stundum verið varasamt að hitta teighöggið vel í miklum meðvindi. Draumahollið er á sínum stað og svo valdi bankastjórinn fyrir okkur uppáhaldsvelli sína. Stórskemmtilegur þáttur í alla staði!
Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi. Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann sem hann notar til að sporna gegn þeirri forgjafarhækkun sem fylgir því að aldurinn færist yfir. Þetta er spennandi þróun sem hjálpar meðalkylfingum að slá lengra og beinna. Við ræðum talsvert um Grafarholtsvöll, en það er þar sem Viggó féll fyrir íþróttinni og hann ber sterkar taugar til vallarins. Stórskemmtilegur þáttur þar sem draumahollið er auðvitað á sínum stað, auk þess sem við förum yfir þau skipti sem Viggó hefur farið holu í höggi. Einna skemmtilegast var þó að heyra af tveimur stórum klúðrum sem Viggó gerði í keppnisgolfinu. Alltaf gaman að fara yfir ófarir annarra.
Við fengum til okkar Gauta Grétarsson í gott spjall á dögunum. Gauti er einn fremsti sjúkraþjálfari landsins og þjálfar marga af bestu kylfingum landsins. Gauti er þrautreyndur íþróttaþjálfari og þjálfaði handbolta á árum áður. Sú reynsla nýtist vel við þjálfun á líkamlegum og andlegum þætti í golfi. Í þættinu ræðir Gauti við okkur hvernig hann undirbjó Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson fyrir Íslandsmótið í golfi með því að æfingum í vonskuveðri á Nesvellinum. Gauti varð Íslandsmeistari eldri kylfinga á dögunum og hann ræðir við okkur um það hvernig hann byrjaði í golfi, að verða neðstur í sínu fyrsta Íslandsmóti og hversu mikið jákvæð hugsun getur hjálpað á golfvellinum. Frábært spjall við einn fremsta þjálfara landsins!
Við fengum Gísla Guðna Hall, lögmann og formann Golfklúbbs Reykjavíkur. Við í Seinni níu höldum því fram að GR sé fjölmennasti golfklúbbur í heimi en í klúbbnum eru nú um 3500 félagsmenn. Í þættinum ræðum við um nýafstaðið Íslandsmót sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli. Mótið heppnaðist með eindæmum vel. Gísli fór aðeins yfir mótið og hvaða þýðingu það hefur fyrir klúbbinn að halda Íslandsmót. Við verjum góðum tíma í að ræða þær endurbætur sem standa yfir í Grafarholti. Þar er stefnt að því að endurbyggja allar flatir vallarins í áföngum og í sumar voru teknar í notkun nýjar flatir á fyrstu þremur brautum vallarsins. Mjög spennandi verkefni. Gísli er góður kylfingur og hefur lengi verið með lága forgjöf. Hann spilar mikið og víða um heim. Gísli á það á ferilsskránni að hafa sex sinnum farið holu í höggi og á nokkrum af erfiðari par-3 brautum valla GR. Draumahollið og kraftröðun á sínum stað í mjög skemmtilegum og áhugaverðum þætti. Í raun skylduhlustun fyrir félagsmann í GR.
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason kom í heimsókn en hann hóf að leika golf fyrir rúmum þremur árum og hefur náð ótrúlegum tökum á íþróttinni. Rúrik er með 8,7 í forgjöf og leikur aðallega golf í Madríd, þar sem hann er nú búsettur. Hann er í sama golfklúbbi og þekktir knattspyrnumenn á borð við Luís Figo og Raúl og hefur tvívegis fengið boð um að spila með þeim. Í bæði skiptin þurfti Rúrik hins vegar að afþakka en á inni hring með þessum goðsögnum. Í þættinum, sem er sá lengsti frá upphafi Seinni níu , er komið víða við. Rúrik fer yfir helstu mistökin sem hann gerði þegar hann var að byrja í golfi og gefur byrjendum góð ráð í skemmtilegri kraftaröð. Draumahollið var sérstaklega huggulegt en þar kemur David Beckham við sögu. Rúrik segir meðal annars sprenghlægilega sögu af því þegar hann hitti Beckham á veitingastað. Þetta er meiriháttar þáttur þar sem margt áhugavert ber á góma.
Við fengum séra Hjálmar Jónsson í gott spjall í Seinni níu . Hann hefur leikið golf í rúm 20 ár og er með rétt tæplega 20 í forgjöf. Hjálmar er auðvitað prestur og við veltum því fyrir okkur hvort það hjálpi að vera með Guð í liði á golfvellinum. Í sumar náði Hjálmar þeim ótrúlega áfanga að fara í þriðja sinn holu í höggi á 8. braut á Urriðavelli. Sú umræða fór auðvitað ekkert fyrir brjóstið á Loga. Presturinn sagði okkur einnig magnaða sögu af aðdragandanum að því þegar hann fór holu í höggi á 4. braut á Urriðavelli. Æðri máttarvöld virtust þar hafa verið með í för. Þetta var stórmerkilegur þáttur enda er Hjálmar einstakur sögumaður. Draumahollið var á sínum stað og að lokum fórum við yfir kraftröðun þeirra atvinnukylfinga sem eru trúaðir.
Það var líf og fjör hjá okkur í Seinni níu að loknu Opna breska. Við tókum létta umræðu um það en fengum líka frábæran gest því Hulda Clara Gestdóttir kom í heimsókn til okkar. Hulda Clara er atvinnukona í golfi og vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður í síðasta mánuði. Hún leikur á LET Access mótaröðinni sem er næststerkasta atvinnumannamótaröð kvenna í Evrópu. Hún hefur jafnframt tvívegis orðið Íslandsmeistari. Hulda sagði okkur aðeins frá því hvernig hún byrjaði í golfi og þegar hún fór holu í höggi á yfir 200 metra langri par-3 braut. Hún hefur tvívegis farið holu í höggi en vill síður ræða það hvernig seinni ásinn atvikaðist. Skemmtileg saga. Hulda segir okkur frá lífi sínu sem atvinnumaður, og hvernig þekking á reglunum getur hjálpað í golfi. Hún tók dómararréttindi í vetur til að efla þekkingu sína á reglunum. Hvað á maður t.d. að gera þegar api tekur boltann þinn við keppni í Suður-Afríku? Frábær þáttur með þar sem við fáum auðvitað draumaholl og kraftröðun.
Hörður Magnússon kom í heimsókn til okkar í Seinni níu . Hann er einn harðasti aðdáandi Phil Mickelson á landinu, en Bandaríkjamaðurinn hefur átt erfitt uppdráttar undanfarið. Við fórum vel yfir stöðuna og fengum kraftröðun yfir bestu sigra Mickelson á ferlinum. Höddi Magg byrjaði að spila golf um þrítugt og spilar lítið um þessar mundir. Raunar svo lítið að hann gaf syni sínum golfsettið sitt fyrir ekki svo löngu. Hann er því minna á vellinum en fylgist þeim mun ástríðufyllra með íþróttinni í sjónvarpinu. Bryson DeChambeau fékk einnig smá pláss í þættinum, en Höddi er ekki sérlega hrifinn af þeim kylfingi. Við hituðum líka upp fyrir Opna breska og fórum yfir ýmislegt fleira. Draumahollið er á sínum stað og að sjálfsögðu ræðum við líka örlítið um fótbolta. Frábær þáttur að venju!
Við fengum til okkar þekktasta málara landsins í Seinni níu. Hrafnkell Freyr Ágústsson, betur þekktur sem Keli í Dr. Football, mætti í þáttinn en hann byrjaði í golfi seint síðasta sumar. Eftir að hafa slegið gott golfhögg í mannskaðaveðri þá féll Keli algjörlega fyrir íþróttinni. Hrafnkell er að bíða eftir að fá nýjan dræver frá Takomo en dræverinn sem hann keypti fyrr á þessu ári reyndist vera ólöglegur. Keli er félagi í Golfklúbbi Grindavíkur og hann leikur mikið golf á Suðurnesjum. Það kom á daginn að Keli er mikilli aðdáandi okkar í Seinni níu og við fengum hann til að kraftraða sínum uppáhaldsþáttum af Seinni níu sem reyndist mjög áhugaverður listi. Sömuleiðis fengum við tvö draumaholl. Frábær þáttur þar sem komið er víða við og auðvitað á léttu nótunum.
Sumarið er í blóma og gestur Seinni níu að þessu sinni er tónlistamaður sem við vissum hreinlega ekki að stundaði golf. Fannar Ingi Friðþjófsson, forsprakki Hipsumhaps. Fannar er einmitt að gefa út nýja plötu um þessar mundir. Við ræðum aðeins um tónlistina en aðallega um golf. Fannar ólst upp á Álftanesi og við ræðum aðeins um golfvöllinn á Álftanesi og einnig Opna álftneska mótið sem Fannar stendur árlega að. Fannar er ekki í golfklúbbi. Þess í stað spilar hann aðallega með vinum sínum sem starfa í bönkum eða ráðgjafafyrirtækjum og eiga greitt aðgengi að helstu golfvöllum landsins. Hann er með 20 í forgjöf og hefur verið fastur í þeirri forgjöf undanfarin ár - ekki hjálpaði þegar hann fékk brjósklos í hálsinn fyrir tveimur árum. Í þættinum er auðvitað komið víða við. Við fáum draumaholl og skemmtilega kraftröðun þar sem Youtube golfkennarar koma við sögu. Frábær þáttur á skemmtilegum nótum.
Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu , því útvarps- og sjónvarpsstjarnan Guðrún Dís Emilsdóttir tók sig til og ræddi við okkur um golf. Hún byrjaði af krafti í golfíþróttinni fyrir örfáum árum og er hreinlega farin að dreyma um golf á nóttunni. Gunna Dís er með 37 í forgjöf , er meðlimur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og leikur talsvert golf yfir sumartímann. Það er margt við golfíþróttina sem hefur komið henni á óvart og fer hún yfir það í skemmtilegri kraftröðun. Sömuleiðis kemur hún með mjög skemmtilegt draumaholl. Við komum víða við í þættinum. Meðal annars kemur í ljós að Gunna hélt vitlaust á kylfunni allt síðasta sumar. Hún notar einnig 7-tré mikið í kringum flatirnar með frekar sérstökum hætti. Frábær þáttur þar sem við förum yfir Opna bandaríska meistaramótið og þátttöku Gunnlaugs Árna í mótinu.
Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara, Aron Snæ Júlíusson, í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þessi tæplega þrítugi kylfingur varð Íslandsmeistari 2021 á Akureyri og svo aftur 2024 á Hólmsvelli í Leiru á mótsmeti eða 16 höggum undir pari. Hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu og unnið fyrstu þrjú mótin á GSÍ-mótaröðinni. Aron verður hins vegar ekki með á Íslandsmótinu í holukeppni um næstu helgi en hann er að fara sem áhorfandi á Opna bandaríska meistaramótið þar sem félagi hans úr GKG, Gunnlaugur Árni Sveinsson, mun fyrstur Íslendinga taka þátt í mótinu. Opna bandaríska fær gott pláss í þættinum en við förum um víðan völl í spjalli okkar við Aron. Hann segir okkur aðeins frá því hvernig hann byrjaði í golfi. Við tökum stöðuna á ferli Arons sem atvinnumaður og svo segir Aron okkur frá því hvernig honum tókst að leika nokkuð stutta par3 braut á 8 höggum en standa samt uppi sem sigurvegari. Mjög áhugaverður og skemmtilegur þáttur með einum besta kylfingi Íslands.
Við fengum körfuboltamanninn fyrrverandi, Fannar Ólafsson, í heimsókn í Seinni níu. Fannar var liðsfélagi Loga í Ion golfmótinu sem við stóðum að núna á dögunum og gekk á ýmsu hjá þeim félögum. Það var svo sannarlega glatt á hjalla. Fannar er með 26 í forgjöf. Hann er kraftagolfari og slær yfirleitt betur þegar hann fær að heyra það frá meðspilurum sínum. Við fáum stórskemmtilega kraftröðun hjá Fannari og draumahollið er á sínum stað. Við komum víða við í þættinum og ræðum meðal annars aðkomu Fannars að Körfboltakvöldi sem lyfti umfjöllun á íslenskum körfuknattleik til mikilla muna. Í þættinum greinir Fannar líka frá sex vikna sjúkralegu sinni eftir að hafa fengið sýkingu í annan fótlegg eftir slys í hesthúsi. Frábær þáttur á sérstaklega léttum nótum.
Við fengum til okkar frábæran gest í vikunni því Bjarney Sonja Ólafsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún gengur alla jafna undir nafninu Baddý og er búsett í Frankfurt, Þýskalandi þar sem hún rekur hugbúnaðar fyrirtækið 1xInternet. Baddý var skikkuð í golf sem barn en hún kemur úr mikilli golffjöldskyldu. Hún stundaði íþróttina fyrstu árin frekar af skyldurækni en af mikilli gleði enda var hún öflug í handbolta sem átti betur við hana á unglingsárum. Baddý fékk hins var golfdelluna á nýjan leik fyrir sex árum og er í dag með um 16 í forgjöf. Baddý segir okkur frá því þegar hún fór holu í höggi á 18. holu Öndverðarnesvallar en svo kom í ljós að öll fjölskylda hennar hefur tekist að fara holu í höggi á þeim velli. Það er í raun alveg magnað. Við fáum líka að heyra hvernig golfið er í Þýskalandi en fjölmargir frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni við Frankfurt. Frábær þáttur sem kemur á óvart!
Við fengum til okkar athafnamanninn Sindra Snæ Jensson til okkar í Seinni níu. Hann er í fjölþættum fyrirtækjarekstri alltfrá pizzastaðnum Flatey og yfir í næturklúbbinn Auto. Sindri hóf að leika golf fyrir sex árum þegar knattspyrnuferlinum lauk og hefur náð fínum tökum á íþróttinni. Hann varð algjörlega sjúkur í golf fyrstu árin og er í dag með ca. 13 í forgjöf. Í þættinum er aðeins farið yfir ferð Sindra ásamt góðum mönnum til Írlands þar sem leiknir voru margir af bestu völlunum á Dublin svæðinu. Sindri kom með frábært draumaholl og fór einnig yfir þá kylfinga sem honum þykir vera svalastir í atvinnumannagolfinu. Einnig ræðum við aðeins íslenska golffatamerkið Brutta en þar er Sindri stór hluthafi. Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf.
Við fengum til okkar frábæran gest í Seinni níu þegar Ólafur William Hand kom í heimsókn til okkar. Hann hefur lengi verið viðloðandi golfíþróttina og setið í stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðin tíu ár. Í þættinum er komið víða við. Ólafur segir okkur aðeins frá golfinu sínu en hann hefur verið mjög víðförull og spilað á marga heimsþekkta golfvelli. Má þar einna helst nefna Pebble Beach, en einnig sagði hann okkur frá ótrúlegum golfvelli í Skotlandi sem toppar allt. Við fórum einnig aðeins yfir þær metnaðarfullu breytingar sem eru að eiga sér stað í Grafarholti og munu bæta völlinn til muna. Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við kraftröðun yfir fimm bestu golfbækurnar sem Óli hefur lesið. Svo fengum við að heyra frábæra sögu þar sem saklaus lygasaga fór aðeins úr böndunum í Myrtle Beach. Frábær þáttur á léttum nótum að venju!
Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli. Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum. Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu. Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.
Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína. Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl. Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekki hversu langan tíma það tekur að verða góð í golfi. Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni. Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni. Frábær þáttur og á léttum nótum að venju!
Ranking source
Apple Podcasts rankings via the Mato Topic Intelligence Platform.
Observed September 20, 2026.
Apple and Apple Podcasts are trademarks of Apple Inc., registered in the U.S. and other countries.
Pairs with
Bring this source into Mato to read its transferable patterns, then turn them into an original show for your own audience.